þriðjudagur, maí 01, 2007
þriðjudagur, apríl 24, 2007
Jæja, búin að fá nóg
Ég gefst upp, hendi árum í bát og leita að nýjum
Ég ætla að færa mig hingað:
http://www.stigveladikotturinn.blog.is
Þó þetta svæði hafi þjónað sínum tilgangi ágætlega, er það orðið svo að æ fleiri færslur týnast í þessu nýja blogger2 kerfi og ég nenni ekki að standa í því. Svo farvel frans

sunnudagur, apríl 08, 2007
Kristur er upprisinn!
Kristur er sannarlega upp risinn.
Það var undarlega ljúft að vakna fyrir allar aldir í morgun, skella sér í bað, troða sér í upphlut, stinga sig með títuprjónum við að festa húfuna og trítla út í kirkju. Þar mætti mér kaffi lyktin (af því ég fór bakdyrameginn) og í eldhúsinu stóðu prestar safnaðarins í óðaönn að hita kaffi og útbúa morgunmat handa væntanlegum kirkjugestum. Kórinn að renna yfir sálmana svo söngurinn ómaði um slottið. Já Páskadagur er einn af fáum dögum ársins sem ég nýt þess að fara á fætur á tíma sem ég annars myndi kalla -ókristilegan.
Það er svo mikil von fólgin í páskadeginum og atburðum hans. Svo mikil vissa og huggun. Án þess ég ætli að fara út í einhverja hugleiðingu hér eða prédikun. Auðvitað ætti maður að hugsa oftar um páskadag -helst á hverjum degi.
Þessum degi fylgir svo mikið bjartsýniskast.
Gleðiðlega páska.
eða eins og þeir segja í austur-kirkjunni
Kristos Anestí (grik)

föstudagur, apríl 06, 2007
Á Föstudaginn langa
---Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.
---
Í gegnum móðu' og mistur
Í gegnum móðu' og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.
---
Ég bíð uns birtir yfir
Ég bíð uns birtir yfir
og bjarminn roðar tind.
Hvert barn, hvert ljóð sem lifir,
skal lúta krossins mynd.
Hann var og verður kysstur.
Hann vermir kalda sál.
Þitt líf og kvalir, Kristur
er krossins þögla mál.
---
Þú ert hinn góði gestur
Þú ert hinn góði gestur
og guð á meðal vor,-
og sá er bróðir bestur,
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber,
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.
---
Þú einn vill alla styðja
og öllum sýna tryggð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dyggð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllum veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa frið.
---
Þín braut er þyrnum þakin,
Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.-
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.
---
Að kofa og konungshöllum
Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.
---
Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
---
---
miðvikudagur, mars 14, 2007
Paris og Strassburg
Paris um hadegi og hotel kl 16:30 eftir erfida ferd med thunga ferdatosku og bakpoka. Paris er audvitad bara aedisleg og otrulega gaman tho faetur minir hafi verid mjog threyttir eftir allt labbid. Thad er langt nidur fra annarri haed i Eiffel og gedveikt ad standa upp i topp og horfa yfir Paris -serstaklega solsetrid sem vid Paul vorum svo heppin ad horfa a a laugardaginn.
A sunnudaginn for eg svo til Strassbourg med lestinni sem tok fjora tima, en margt ad horfa a svo thad var audvelt ad gleyma ser. En leidin la m.a. i gegnum campane-heradid sem er mjog fallegt. Thvi midur var myrkur taepan helming leidarinnar en eg se thetta allt saman thegar eg fer heim en eg fer med lestini kl 06:15 fra Strassbourg naesta sunnudag.
Her er bara gaman og mikid fjor laet thetta duga i bili, meira thergar eg kem heim.

laugardagur, febrúar 24, 2007
Í landi siðapostulanna
Það er vissulega huggun að vita til þess að siðferðiskennd landans hefur styrkst eins og mikið og dæmin bera með sér og hefur nú verði sýnd í verki. Verki sem þó kann að draga dilk á eftir sér.
Þeim sem taldir eru siðlausir, að mati siðapostula landsins, er úthýst eins og frægt er orðið. Áður en lengra er haldið skal geta þess að ég er lítt hrifin af þeim atvinnuvegi, sem þetta fólk hefur lifibrauð sitt af. Hins vegar er það svo að þetta er löglegur bransi víða annars staðar í hinum stóra heimi og í Bandaríkjunum einum eru skatt tekjur ríkisins svo miklar af þessum atvinnuvegi að þetta verður seint bannað. Og þetta er fólk sem ætlaði hingað að koma til að fara Gullnahringinn og fara í Bláalónið s.s. skemmta sér.
Siðapostularnir hafa verið við að fara af límingunum, vegna komu þessa fólks -sem þeir kalla glæpamenn. Sama fólkið og varð alveg snældu vitlaust þegar var verið að snúa fólki við á Vellinum, sem var á leiðinni til landsins til að mótmæla virkjunarframkvæmdum (sem ég er einnig lítt hrifin af). Fólki sem var á sakaskrá, fólki sem fer á milli landa til þess að mótmæla, skemma, brjóta og bramla. Og hvað gerðist þessi rumpulýður, sem siðapostularnir vildu endilega bjóða velkomna, var kominn á svæðið. Þeir voru til eintómra vandræða og unnu skemmdaverk fyrir miljónir. En það er allt í lagi. Það er betri þekktur brota/glæpamaður en óþekktur siðleysingi.
Ekki hefur nokkuð komið fram sem bendir til þess að þetta fólk, sem hingað hafði hugsað sér að leggja leið sína, sé á sakaskrá. Samt voga siðapostularnir sér að kalla þetta fólk glæpamenn. Þrælahaldara, barnaníðinga og að þau standi að mannsali (Mansali(selja konur)/Mannsali(selja menn, fólk almennt).
Gerir þetta fólk sér grein fyrir því að það er refsivert athæfi að láta svona lagað út úr sér án nokkura sannanna. þetta eru hrein og klár meinyrði. Það er að mínu mati langur vegur frá því að leika og eða framleiða fullorðinsmyndir og misnota börn. Að mati feminista er þetta ofbeldi gegn konum (þær minnast aldrei á mennina sem "leika" í þessum myndum), þó eru til myndir þar sem engar konur eru í. Hinar framsæknu konur feministar eru svo fornfálegar í hugsun að þær geta enn ekki hugsað konuna öðruvísi en passiva þegar kemur að kynlífi, sem sýnir að hugsunar háttur þeirra er enn bundin sömu höftum og þess sem ritaði að konan væri vanskapaður karlmaður. Þetta er ofbeldi vegna innrásar í líkama konunar, en það er ekki talað um að það sé ofbeldi þegar karlmaður í slíkum myndum upplifir það sama -nei nei honum þykir það bara gott.
Hótelið hendir hinum siðlausu út á götuna, en heldur áfram að bjóða upp á og selja klámrásir með myndum sem þetta sama fólk hefur leikið í eða framleitt.
Ráðamenn þjóðarinnar taka þátt í vitleysunni og hið háa Alþingi ræðir málið og lætur móðin mása í fréttatímanum - allt fyrir atkvæðið. Sama Alþingi og leyfði súlustaði. Ráðamennirnir sem bjóða hingað til lands þekktum glæpamönnum, sem bera virðulega titla í heimalandinu, í opinberar heimsóknir og sólunda þannig skattpeningunum. Skattpeningum sem hefður betur verið nýttir í að greiða mannsæmandi laun til þeirra sem t.d. hefðu unnið á heimilinu sem er verði að loka. Heimili fyrir geðsjúka sem eru að fóta sig í lífinu eftir meðferð eða vistun á stofnum. Nú eða hækka aðeins lífeyri aldraðra sem lepja dauðann úr skel.
Nei það er betra að standa reistur og berja sér á brjóst eins og fariseinn og þakka fyrir að vera ekki eins og þetta synduga fólk.
En þrátt fyrir allt sem ég hef nefnt hér að ofan, er ég líttt hrifin af starfsemi þessa hóps.
Málið er bara: Ef þú ætlar að vera siðapostuli er alla vega gott að vera samkvæmur sjálfum sér. Það er ekki hægt að velja úr því siðlausa eitt, en láta svo sem annað sé sjálfsögð mannréttindi.
Réttur manns nær aldrei lengra en til næsta manns.

laugardagur, febrúar 17, 2007
Afmæli
Hún Ásta á afmæli í dag 28 ára til hamingju Ásta mín og í tilefni þess ætlar hún að hafa veislu. Þar sem ég kannast eitthvað við stúlkuna veit ég að það verður góð veisla vel úti látið og mikið fjör enda er hún höfðingi heim að sækja.
Annars er það að frétta héðan úr Húsi katta að ég fór og verslaði nýjan bíl. Nú stendur gamli bíllinn minn (fyrsti bíllinn minn) hér úti á planinu númeralaus svólítið sorglegur. Hann er búin að skila sínu, ég er búin að keyra hann alveg óhemju mikið. Hann kemur til með að standa þarna eitthvað árfam þangað til ég finn honum frekari tilgang.
Jæja seinna